|
Hlöðuvallaskáli er sameign FÍ og Laugdælahrepps. Hann var
byggður 1970 og stendur í hrauninu sunnan Hlöðufells. Í honum er
stór forstofa og svefnsalur með eldunaraðstöðu (gas-hellur). Í
svefnsalnum eru kojur fyrir 15 manns. Vatni er safnað af þaki
hússins.
Möguleiki er til margra skemmri og lengri gönguferða,
s.s. á Hlöðufell, Elborgir á Lambahrauni, Kálfstind, Högnhöfða, Skriðu
og Skjaldbreið auk þess sem gönguferð um Rótarsand að Brúarskörðum
svíkur engan.
Margir koma gangandi að skálanum en einnig liggja jeppaslóðar frá
Brunnum á Kaldadalsleið, upp frá Miðdal við Laugarvatn, upp úr
Haukadalsskógi við Geysissvæðið og frá syðsta hluta Kjalvegar, ekki
langt norðan Gullfoss.
Heimild: Vefur FÍ. |