Gisting á hálendinu, skáli FÍ á Hrafntinnuskeri,

Gisting & tjaldst.
Hálendiđ

Hrafntinnusker Hvanngilsskálar Alftavatnsskálar Skagfjörđsskáli

SKÁLI FÍ á HRAFNTINNUSKERI
Gönguleiđin Ţórsmörk - Landmannalaugar
„Laugavegurinn”

.

.

Ferđaáćtlanir

Rútur-Ferjur-Flug


Ferđaheimur

Höskuldsskáli á Hrafntinnuskeri var byggđur 1977 í 1027 m hćđ yfir sjó.  Hann hýsir 36 manns í kojum en heimilt er ađ nýta tvíbreiđar kojur og autt gólfpláss til gistingar í vondum veđrum.  Skálinn er jarđhćđ međ eldhúsi og sal og ris međ 18 dýnum á gólfi og herbergi skálavarđar.

Húsiđ er hitađ međ jarđvarma allt áriđ.  Skálavörđur er á stađnum í júlí og ágúst og ţá er rennandi vatn í krana í eldhúsi og utanhúss fyrir tjaldgesti.  Utan vörzlutíma verđur ađ sćkja vatn í gil vestan skálans eđa brćđa snjó.  Rafmagn til ljósa fćst frá birtunemum.  Rofinn er í anddyri og rafmagniđ nćgir til 6 klst. notkunar.  Rofar eru einnig á lömpum.  Raforkan er einnig nýtt til ađ knýja vatnsdćlur.  Vinsamlegast fariđ sparlega međ rafmagniđ.  Gashellur, sem eru tengdar gaskútum allt áriđ, og önnur nauđsynleg eldhúsáhöld eru í eldhúsinu.

Stundum bregzt tćknin, sem er notuđ til öflunar hita, rafmagns og vatns.  Ţá er reynt ađ ná til viđgerđarmanna, en hafa verđur í huga, ađ ţeir eru í 200 km fjarlćgđ og ekki er alltaf fćrt bílum ađ skálanum.

Nćturró er á tímabilinu frá miđnćtti til kl. 7 á morgnana nema skálavörđur leyfi annađ.  Eldhúsiđ má ekki nota á ţessum tíma.  Reykingar eru bannađar í skálanum.

Neyđartalstöđ er í anddyri!.

Sumarkamrar eru í nćsta nágrenni hússins en á veturna er notađur kamar, sem er tengdur anddyri.

Skálinn stendur í sendnu umhverfi og sandur berst inn í hann, gćti gestir ekki ađ ţví ađ ţurrka vel af fótunum.  Skó á ađ skilja eftir í anddyri og gott er ađ hafa međ sér inniskó.  Gestir eru hvattir til ađ ađstođa skálavörđ viđ ađ halda húsinu hreinu og leiđsögumenn eru beđnir ađ skýra hópum sínum frá skálareglum.  Utan vörzlutíma eiga gestir ađ gera hreint fyrir brottför.

Tjaldstćđiđ er á sandinum neđan skálans og tjaldgestir hafa ađgang ađ vatni úr krana viđ skálann.

Gestir verđa ađ taka allt rusl međ sér.  Ruslagámar eru í Landmannalaugum og viđ Álftavatn.  Vinsamlega fleygiđ ekki rusli í kamra og feliđ ţađ ekki undir steinum.  Hreint land – fagurt land!

Rekstur skálans er dýr og ţví mikilvćgt, ađ gestir greiđi fyrir notkun hans.  Ferđafélag Íslands birtir ár hvert gjaldskrár fyrir gistingu í húsi og tjaldi og viđveru.  Skálavörđur innheimtir gjöldin í júlí og ágúst en utan ţess tíma eru gestir beđnir ađ stinga greiđslunni í baukinn í anddyrinu.

Hnit (WGS-84):  63.933261 19.168080.
UTM (WGS-84):  7090867.1 7589807.4.
Geographical co-ordinates (Hjörsey 1955):  63.933571 19.168477
UTM ( Hjörsey1955):  7091076.0 75897691.6
Heimild:  Vefur FÍ.

Íshellar myndast vegna jarđhita.  Ţađ er áhćttusamt ađ fara inn í slíka hella vegna hrunhćttu.  Ferđamađur beiđ bana í einum ţeirra í Hrafntinnuskeri morguninn 16. ágúst 2006.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM