|
Skálar
FÍ í Nýjadal/Jökuldal standa í u.þ.b. 800 m hæð yfir sjó við mynni
samnefnds dals, suðvestanundir Þvermóði á mel sunnan Nýjadalsár.
Bílaslóðin um Sprengisand liggur um hlaðið. Fyrri skálinn var
byggður 1967. Hann er tveggja hæða. Á neðri hæð er
forstofa, eldhús, herbergi skálavarða og svefnskáli og á efri hæð er
svefnloft. Í nýrra húsinu er eldhús, herbergi skálavarðar og
svefnsalur niðri en uppi er svefnloft. Alls hýsa bæði húsin 120
manns í kojum og á dýnum. Eldhús beggja skálanna eru búin
eldavélum, pottum og pönnum en ekki öðrum mataráhöldum. Á sumrin
er skálavarzla og sorphirða. Vatnssalerni og sturtur eru í
sérstöku húsi. Af hlaðinu blasir við suðvesturhlíð
Tungnafellsjökuls, sem er auðveldur uppgöngu frá blómum prýddum
Nýjadalnum/Jökuldalnum. Þaðan er einnig greið leið yfir Mjóháls
austur í Vonarskarð.
Sími frá 1. júlí til 31. ágúst: 854-1194.
GPS staðsetning:
64°44.130 18°04.350.
Heimild: Vefur FÍ. |