|
Valgeirsstaðir
við Norðurfjörð á Ströndum er gamalt íbúðarhús í góðu ástandi.
Það er við botn fjarðarins, rétt ofan við fallega sandfjöru.
Húsið er hitað með rafmagni. Það er tvær hæðir. Á efri hæð eru 4
svefnherbergi, sem rúma allt að fjóra gesti. Á neðri hæð eru
fjögur herbergi, sem rúma allt að 6 gesti. Þarna er einnig
velbúið eldhús og borðstofa. Í eldhúsinu er heitt og kalt vatn,
rafmagnseldavél með ofni, örbylgjuofn og allur borðbúnaður. Í
húsinu er sturta og tvö salerni. Verzlun er í 10 mínútna
göngufæri frá húsinu og sundlaug er við Krossnes. Skemmtilegar
gönguferðir um stórbrotið umhverfið liggja á Töflu, Kálfatinda,
Munaðarnesfjall og Krossnesfjall. Lengri gönguleið liggur til
Ingólfsfjarðar í kringum Strút. Þarna er einnig gaman að fara í
fjörugöngur og skoða Tröllahlaða og Bergið auk Gvendarsætis, þar sem
Guðmundur biskup góði sat, þegar hann vígði Urðirnar í Norðurfirði.
Sími frá 1. júlí til 31. ágúst: 451-4017.
GPS staðsetning:
66°03.080 21°33.970.
Heimild: Vefur FÍ. |