|
Húsið
í Álftavötnum var endurreist af sjálfboðaliðum Útivistar árið 2001.
Gangnamenn hættu að nota það eftir að húsin í
Hólaskjóli voru byggð. Góður jeppavegur nær langleiðina að
húsinu, en ganga þarf síðustu 2-300 metrana. Fyrir vikið ríkir þar
mikil kyrrð og friður og einstök fegurð. Unnendur ósnortinnar
fjallafegurðar geta dvalið langtímum saman á hlaðinu og tilbeðið
útsýnið og fegurðina. Vinsæl reiðleið liggur um hlaðið og hefur verið
reist gerði norðan við húsið, þar sem hestamenn geta hvílt hross sín
um stutta stund. Gróðursælt er við húsið og mjög góð tjaldstæði.
Þar er rennandi vatn og vatnssalerni. Innandyra er pláss fyrir allt að
24. Fjölmargar gönguleiðir eru innan seilingar
má nefna dagsferð í Strútslaug eða á Gjátind. Stutt ganga er í
Hólaskjól.
Sími: 562 1000
GPS staðsetning er N 63° 53.890' W 18° 41.467'.
GPS
hnit:
63° 53.890'N 18° 41.467'W
Efni af vef Útivistar.
Book online:
 |