|
Eftir
stofnun Útivistar var fariđ ađ huga ađ byggingu skála
á Ţórsmerkursvćđinu. Ákveđiđ var ađ
byggja á Gođalandi. Ţar međ yrđi einn skáli
sunnan Krossár og
til aukins öryggis ferđamanna, auk ţess
ađ hann veitti ađgang ađ
stórkostlegu göngulandi. Básar höfđu fram ađ ţví veriđ nánast ónumdir,
ađeins smalar og einstaka heimamenn undan Eyjafjöllum og af
Rangárvöllum ţekktu ţessa einstöku paradís. Stóri skálinn í Básum var
byggđur á árunum 1980-1981 og litli skálinn
skömmu síđar. Á miđjum níunda áratugnum var
síđan byggt stórt eldhús og borđsalur viđ stóra skálann. Strax viđ
landnám Útivistar var fariđ ađ byggja upp ađstöđu á tjaldstćđum.
Síđan hefur veriđ unniđ stöđugt í
sjálfbođavinnu ađ endurbótum á húsum og tjaldstćđum
á Gođalandi. Útivist hefur gefiđ út göngukort međ leiđarlýsingum um
Ţórsmörk og Gođaland en á Gođalandi er úrval gönguleiđa, hvort sem
menn kjósa auđvelda göngu eđa ađ horfa til fjalla.
Á sumrin er rennandi vatn og vatnssalerni viđ skálana og víđa á
tjaldstćđunum. Skálarnir eru kyntir međ olíueldavélum og rafstöđin
Básabína nýtir vatn úr bćjarlćknum til ljósa. Í húsunum er gistirými
fyrir um 80-90 manns. Skálaverđir eru í Básum
frá ţví snemma í maí og fram í október. GPS stađsetning er 63°40,559'N
19°29,014'W. Segja má ađ í Básum slái hjarta
Útivistar.
Sími: 562-1000
GPS hnit: N63°40,559' W19°29,014'.
Heimild: Vefsetur Útivistar.

on
line |