|
Fuglalíf á norðan- og
austanverðri
Melrakkasléttu
er fjölbreytt, m.a. vegna hinna mörgu
vatna og lóna. Á Langanesi er mikið um bjargfugl. Niðri á Héraðssöndum, við ósa Jökulsár á Dal og
Lagarfljóts er lítið skúmavarp og mikið um kjóa.
Upp með Lagarfljóti verpur grágæs og í
Hallormsstaðarskógi
eru sömu tegundir og í öðrum skóglendum landsins.
Bæði í
Skrúð og
Papey er gífurlegur fjöldi sjófugla.
Nokkuð er um súlu í Skrúð.
Við Hamars- og Álftafjörð og Lón eru kjörsvæði
vaðfugla. |