Fuglar Vestfirðir,

Meira um Ísland

Fuglar Íslands


FUGLAR VESTFIRÐIR

.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Víða á Vestfjörðum eru áhugaverðir staðir fyrir fuglaskoðara.  Þar eru þrjú stærstu fuglabjörg landsins, Látrabjarg, og  mlli Hornbjarg og Hælavíkurbjarg.  Hið fyrstnefnda er vestasti hlutin landsins og þar með Evrópu.  Bjargið er 14 km langt og allt að 400 m hátt.  Áætlað er að tvær milljónir stuttnefja og langvía verpi þar.  Hin tvö síðarnefndu standa hlið við hlið á norðanverðum Vestfjörðum.

Barði er á milli Önundar- og Dýrafjarðar.  Þar er eitthvert stærsta bjartmávavarp landsins og á Mýrum í Dýrafirði er stærsta æðarvarp landsins (ca. 7000 pör).  Óheimilt er að ganga um æðarvörp án leyfis landeigenda.  Æðarkóngur er reglulegur vetrargestur á vestanverðu landinu en ekki er vitað um varp.  Fálki er einna algengastur á Vestfjörðum.  Haförn sést oft í innfjörðum Djúps.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM