|
Fullorðin
karldýr eru u.þ.b. 3 m löng og vega 250-370 kg. Kvendýrin eru 2½-3 m og vega 180-250 kg.
Snjáldrið er stutt og bakugginn langur og mjór.
Liturinn er blásvartur að ofan en kviðurinn hvítur eins og bægsli
og sporður að neðan. Efri skoltur er ljós að ofan og tennurnar, 22-25 í hvorum
skolti, eru keilulaga. Lífslíkur
eru 20-40 ár. Útbreiðslusvæði
er frá Vestur-Grænlandi, Íslandi og Barentshafi suður að
Massachusettsfylki í BNA og Frakklandi.
Aðalfæða er smokkfiskur,
síld, loðna, þorskur o.fl. Kýrnar
bera á sumrin og kálfurinn er 0,7-0,85 m langur og vegur u.þ.b. 5 kg
við fæðingu. Blettahnýðirinn er bæði við strendur og úti á hafi.
Hann er félagslyndur, oft 6-8 saman og stundum í stórum vöðum.
Hann er forvitinn og fylgir oft skipum og stekkur þá gjarnan. Hann er fardýr, sem kemur upp að Íslandsströndum á vorin
og syndir suður á haustin. Heildarstofnstærð
er óþekkt en áætlaður fjöldi við Ísland er 12.000-20.000 dýr. |