|
Karldýrin
eru u.þ.b. 6-8 m löng og vega 4-5 tonn.
Kvendýrin eru 4-6 m og 2-3 tonn.
Ennið er bratt og kúpt og litur svartur nema ljósa beltið á
kviðnum. Bægslin eru mjó
og löng og tannapör í hvorum skolti eru 8-13.
Lífslíkur eru líklega 30-60 ár.
Grindhvalir halda sig í
Norður-Atlantshafi og Suðurhöfum.
Norður-Atlantshafstegundin er undirtegund (G. m. melaena), sem
eyðir vetrinum sunnan 55°N en flakkar norður á sumrin og er algeng
við Grænland og Ísland og í Barentshafi.
Þeir lifa bæði í úthafinu og á grunnsævi og eru mjög félagslyndir.
Þeir synda oft 20 saman í fæðuleit og miklu fleiri í öðrum
tilgangi.
Grindhvalir eru fjölkvænisdýr. Kvendýrin verða kynþroska 6 ára en karldýr 12 ára.
Mökun fer fram í apríl-maí, meðgangan er 16 mánuðir og kálfurinn
er á spena í 21-22 mánuði. Kálfurinn er u.þ.b. 2 m langur og 70-80 kg við fæðingu.
Kýrnar bera þriðja hvert ár.
Köfunartíminn er venjulega 4 mínútur og mesta köfunardýpi
er álitið 350 m. Þeir
sofa í svo þéttum hnapp, að bægslin snertast.
Aðalfæðan er smokkfiskur,
en líka fiskur, þegar lítið er um smokkfisk.
Hérlendis er grindhvalurinn algengastur við norðvestur- og
vesturstrendurnar. Ekki er
vitað um heildarfjölda grindhvala í heiminum er áætlað er að fjöldi
þeirra við Ísland sé 100.000 – 200.000. |