Hnísa, Selhnísa,
[Flag of the United Kingdom]
In English


Meira um Ísland


HNÍSA
(HARBOUR PORPOISE)
(Phocoena phocoena)

.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug

 

Hnísa er einnig nefnd selhnísa.  Fullvaxin karldýr eru tæpir tveir metrar á lengd og vega u.þ.b. 70 kg.  Kvendýrin eru 1,4-1,9 m löng og vega 55-60 kg.  Lífslíkurnar eru 30 ár.  Hnísan er dökkgrá að ofan, ljósari á síðum og hvít á kviði.  Dökkar rákir eru milli bægsla og munnvika.  Bakugginn er lágur, ávalur og afturhallandi.  Tennurnar eru 40-60 í hvorum skolti og eru spaðalaga.  Köfunartími er 2-6 mínútur og hún kafar niður á 10-100 m dýpi eftir fæðu.  Aðalfæðan er fiskur en einnig smokkfiskur og ljósáta.

Hnísan heldur sig aðallega í Norðurhöfum, Atlantshafi og Kyrrahafi.  Kvendýr verða kynþroska 3-4 ára og fæða venjulega einn kálf á ári.  Meðgöngutíminn er 10-11 mánuðir.  Karldýrin verða kynþroska nokkru eldri.  Hnísan var veidd víða fyrir ströndum, einkum úti af Breiðafirði og Vestfjöðrum.  Hún flækist oft í netum, einkum hrognkelsanetum, og er nýtt.  Bandaríkjamenn veiða hana fyrir ströndum Washingtonríkis.  Kanadamenn og Grænlendingar veiða hana einnig.  Stofninn er talinn í hættu vegna mengunar í höfunum.

Stofnstærð Selhnísu er óþekkt.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM