Ögurkirkja Vestfirðir,

Meira um Ísland


ÖGURKIRKJA
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Ögurkirkja er í Vatnfjarðarprestakalli í Ísafjarðarprófastsdæmi.  Ögur er bær og kirkjustaður í Ögurvík milli Skötufjarðar og Mjóafjarðar.  Ögurkirkja er stórt og vandað timburhús, reist 1859.  Hún á marga góða gripi en margir hinna dýrmætustu þeirra eru komnir á Þjóðminjasafnið.  Enn þá eru í kirkjunni altaristafla eftir Anker Lund frá 1889 (upprisan), kaleikur frá 1854 og einstakir ljóshjálmar.  Tvær klukkur eru í turni, önnur mjög gömul með áletrun og mynd af Önnu, Maríu og Jesú.

Í Ögri var höfuðkirkja Ögurþinga með útkirkju á Eyri við Seyðisfjörð.  Prestssetrið var á ýmsum jörðum í sóknunum, síðast á Hvítanesi og svo í Súðavík.  Prestakallið var lagt niður með lögum 1970 og Ögursókn féll til Vatnsfjarðar en Eyri til Ísafjarðar.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM