|
Ábæjarkirkja er í Mælifellsprestakalli í
Skagafjarðarprófastsdæmi. Ábær,
á eystri bakka Austari-Jökulsár, hefur verið í eyði síðan 1941.
Steinsteypt kirkja, sem var vígð 1922, stendur þar enn þá.
Sókninni var fyrrum þjónað frá Goðdölum en árið 1907 var
hún lögð til Miklabæjar.
Önundur víss, landnámsmaður í Austurdal er talinn hafa sett
saman bú að Ábæ.
Meðal þekktra drauga í þjóðsögum er Ábæjar-Skotta.
Hún var mörgum erfiður ljár í þúfu, einkum fólki í
innanverðum Skagafirði.
Hún drap fé, hræddi fólk og er jafnvel sögð hafa orðið því
að bana.
Hún var í slagtogi með Þorgeirsbola og settist stundum á húð
hans og lét hann draga sig, þegar hún var þreytt. |