Barðskirkja er í Hofsósprestakalli í
Skagafjarðarprófastsdæmi. Barð er bær, kirkjustaður og fyrrum
prestssetur í Fljótum. Þar voru katólskar kirkjur helgaðar
heilögum krossi og Ólafi helga Noregskonungi.
Útkirkja var í Holti.
Barðsprestakall var lagt niður 1970 og báðar sóknir lagðar til
Hofsóss. Kirkjan, sem nú stendur, var byggð 1880 og forkirkjunni
var bætt við 1919.