|
Blönduóskirkja er í Blönduósprestakalli í
Húnavatnsprófastsdæmi.
Gamla kirkjan á Blönduósi, hin fyrsta á
staðnum, stendur vestan ár (staðarmenn segja sunnan ár) en hin
nýja austan ár. Hún er úr timbri, var flutt frá Hjaltabakka
1894 og vígð 1895. Í
henni er altaristafla eftir Jóhannes Sveinsson Kjarval. Blönduós
hefur verið prestssetur síðan 1968 og þjónar
Þingeyrarprestakalli. Gamla kirkjan var friðuð
1. janúar 1990 samkvæmt 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr.
88/1989.
Samkvæmt fréttum 29. ágúst 2007 ákvað fjölmennur
safnaðarfundur að gefa Sveini M. Sveinssyni,
kvikmyndaforstjóra hjá +Film, og Atla Arasyni, hönnuði,
kirkjuna. Þeir eiga að vera búnir að koma henni í
viðunandi ástand um áramótin 2009-10. Kirkjan verður
afhelguð og hana má nýta til verkefna, sem hæfa
fyrrverandi guðshúsi. Nýju eigendunum er óheimilt að
ráðstafa kirkjunni nema í samráði við sóknarnefnd.
Nýju eigendurnir hyggjast koma upp alhliða aðstöðu fyrir
listamenn af öllum toga í kirkjunni.
Nýja
kirkjan var vígð 1. maí 1993. Dr. Maggi Jónsson
teiknaði og hannaði hana og sótti hugmyndir að útlitinu í
fjöllin og landslagið í umhverfinu. Kirkjan tekur
250 manns í sæti. Byggingarframkvæmdir hófust 1982.
Í kjallaranum er aðstaða fyrir safnaðarstarf. Munir
gömlu kirkjunnar prýða hina nýju, s.s. altaristaflan
(Emmausgangan eftir Jóhannes Kjarval) og skírnarfonturinn
(Ríkharður Jónsson skar út; gjöf frá Guðbrandi Ísberg,
fyrrum sýslum. til minningar um konu hans). Orgelið
var vígt um leið og kirkjan (4 radda; Marcusen og søn D.) |