|
Efranúpskirkja er í Melstaðarprestakalli í
Húnavatnsprófastsdæmi. Kirkjusetur á hinum forna
góðbændagarði á Efri-Núpi er ævagamalt. Hér er efsta
byggðarból í sveit (200m.y.s.), Fremri-Torfustaðahreppi, og sókn.
Voru
löngum talin 14-15 býli í sókninni. Frá Efri-Núpi
er talinn 10 stunda gangur suður um Arnarvatnsheiði til
byggða Borgarfjarðar. Var umferð mikil
fyrrum og gjarnan gististaður á Efra-Núpi. Varð hér
hinzti náttstaður Rósu Guðmundsdóttur skálds, sem er kennd
við Vatnsenda í Vesturhópi, 28. sept. 1855.
Árið 1965 komu húnvetnskar konur veglegum steini fyrir á
leiði hennar.
Jón Arason Hólabiskup sló eign sinni á
Efra-Núp 1535 og úr fyrra sið er enn þá varðveitt
kirkjuklukka, 23 sm í þvermál og ber gotneskt letur, þar sem
greinir á hollenzku, að steypt sé 1510. Hin klukkan er frá
1734, nær 6 sm stærri og á hana letrað nafn Guðmundar
Jonassens. Í stað timburkirkju frá 1883 var reist steinsteypt kirkjuhús 1960. Sigurður
Jónsson, vinnumaður á Efra-Núpi, gaf allt sementið og mjög
unnu sjálfboðaliðar að og margar gjafir gefnar í
kirkjumunum, enda er kiekja, sem séra Sigurður Stefánsson
víglsubiskup á Möðruvöllum vígði hinn 20. ágúst 1961,
prýðilega búin.
Húsið er 9,5 x 5,7 m að innanmáli í einu skipi undir járnþaki
með timburturni yfir kirkjudyrum. Á hvorum kirkjuvegg eru 3
sexrúðugluggar undir rómönskum boga, en lítill einrúðugluggi
sinn hvorum megin við altari. Kirkjan er björt, hvítmálaðir
múrveggir og lýsing frá vænum kristalshjálmi og 8 ljósaliljum.
Súðin er viðarklædd að mæni og panellinn lakkborinn sem breiðir
kirkjubekkrinir, er rúma 60 í sæti. Altair er stórt, 1,8 x 0,7 sm
og grátur að framan en opið til hliða á kórgólfi, farfað
brúnum lit eins og fimmstrendur predikunarstóllinn.
Hátt á
kórgafli er trékross, en altaristaflan málverk Eggerts
Guðmundssonar, er sýnir Jesú blessa börnin. Stjakar eru 4 og
kaleikur og patína af silfri og með gyllingu innan, allt góðir
gripir, sem og skrúði kirkjunnar. Hljóðfærið er gamalt
Spartha-harmoníum frá Gera í Thüringen í Þýzkalandi og stendur
í norðvesturhorni, þar sem rými er fyrir söngflokk. Kirkjunni er
þjónað frá Melstað. |