Einarsstaðakirkja er í
Grenjaðarstaðaprestakalli í Þingeyjarprófastsdæmi. Einarsstaðir
eru stórbýli og kirkjustaður í Reykjadal.
Þar voru katólskar
kirkjur helgaðar Pétri postula og útkirkjur frá Helgastöðum til
1907, þegar sóknin var lögð til Grenjaðarstaðar. Kirkjan, sem
nú stendur á staðnum, var byggð 1862.