Fellskirkja er í Hofsósprestakalli í
Skagafjarðarprófastsdæmi. Fell er bær og kirkjustaður í
Sléttuhlíð. Þar var prestssetur til 1891, þegar það var flutt til
Hofsóss.Katólskar kirkjur á staðnum voru helgaðar Pétri postula.
Útkirkjur voru á Höfða og í Málmey. Kirkjan, sem stendur þar nú,
var byggð 1881-82.
Meðal annálaðra galdrapresta á staðnum var Hálfdán
Narfason (15.-16. öld).