|
Flugumýrarkirkja er í Miklabæjarprestakalli
í Skagafjarðarprófastsdæmi. Flugumýri er bær og kirkjustaður í Blönduhlíð, sem
heyrði til Hofsstaðaþinga til 1861, þegar þau voru lögð niður. Þá var sóknin lögð til Miklabæjar. Kirkjan, sem nú stendur á Flugumýri, var byggð á árunum
1929-1930.
Flugumýrarkirkju er fyrst getið
í Sturlungu árið 1253, en vafalítið var þar kirkja alllöngu
fyrr, þótt engar heimildir hafi fundizt.
Flugumýri var landnámsjörð Þóris
dúfunefs og hefur frá öndverðu verið í tölu bestu jarða í
Skagafirði. Hún var ein
af þriggja jarða í Akrahreppi, sem metin var í hæsta landsskala,
eða hundrað hundruða að dýrleika á meðan á öllu landinu voru
aðeins 42 jarðir metnar svo hátt og í mörgum sýslum var engin jörð
svo hátt metin.
Kirkjan kemur við sögu í Flugumýrarbrennu
22. október árið 1253, þegar Hallur Gissurarson stökk út úr
brennandi bænum. Þegar
hann kom út, hjó einn
brennumanna hann í höfuðið og annar hjó á hægri fótinn svo
nálega tók af um hné. Hallur lifði árásina af en lá illa
útleikinn þar til Þórólf munk bar að og skaut undir hann
gæru og dró hann til kirkju. Þar lá Hallur til morguns, eða
þar til orðið var hálfbjart, en þá dó hann. Gissur, faðir
Halls, var studdur til kirkju, þegar brennumenn voru horfnir
á braut eftir að hann kom kaldur og hrakinn upp úr
sýrukerinu.
Ekkert
er vitað um stærðir kirkna að Flugumýri og ekkert um fjölda
altara. Sennilega hefur kirkjan verið nokkuð stór, því að
heimildir geta þess, að Hólabiskup hafði oft haft prestastefnur þar.
Engir máldagar hafa varðveitzt frá
Flugumýrarkirkju, svo að ekkert er vitað um eignir kirkjunnar
en smávísbendingu eru þó til, s.s. um sætaskipan í brúðkaupsveizlunni
að Flugumýri. Þar
segir í Sturlungu, að kirkjustólar hafi verið settir eftir miðju
gólfi í stofunni og var þar setið á tveim megin. Þessi lýsing
segir okkur að Flugumýrarkirkja hafi verið betur búin af sætum en
nokkur af þeim kirkjum sem við höfum skoðað máldaga frá í
Skagafirði á miðöldum. Venja var á þeim tíma að fólk stæði
meðan messu voru sungnar. Er því trúlegast að húsbændurnir og
heldra fólkið hafi setið á bekkjunum.
Kirkjan á Flugumýri var helguð Pétri
postula, en hans tákn var öfugur kross. Helgisagan segir að Pétur
hafi verið krossfestur í Rómaborg og beðið um að krossinn væri
látinn snúa öfugt, því hann væri ekki verður að mæta dauða sínum
á sama hátt og meistari hans. Önnur tákn hans eru lyklar sem
gjarnan eru tveir í kross og hani.
Flugumýri komst í eigu Hólastóls
2. janúar árið 1360, þegar Jón skalli Eiríksson, biskup á Hólum,
keypti jörðina. |