|
Garðskirkja er í Skinnastaðaprestakalli í
Þingeyjarprófastsdæmi. Garður er bær, kirkjustaður og fyrrum
prestssetur í Kelduhverfi. Þar voru katólskar kirkjur helgaðar
Maríu guðsmóður, Jóhannesi postula og Tómasi postula, Guði og
öllum heilögum mönnum. Útkirkja var í Ási, en sóknirnar voru
sameinaðar 1816.
Prestakallið var lagt niður til bráðabirgða
1862 og að fullu 1880 og sóknin lögð til Skinnastaðar. Kirkja,
sem nú stendur á staðnum, var byggð 1890. |