|
Glerárkirkja er í
Glerárprestakalli í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Áður en Glerárkirkja var
reist, var aðeins ein kirkja í Lögmannshlíðarsókn,
Lögmannshlíðarkirkja (vígð 30. nóv. 1860). Hún var löngu orðin of
lítil og fyrsta byggingarnefnd var skipuð 1969. Glerárprestakall var
stofnað árið 1981, þegar Akureyrarprestakalli var skipt. Ný
byggingarnefnd var skipuð snemma sama ár og fyrsti presturinn, Pálmi
Matthíasson, var kosinn síðla sama árs. Talsverður tími fór í
breytingar á staðsetningu nýju kirkjunnar og ný lóð fékkst 1983 og ný
byggingarnefnd var skipuð í nóvember sama ár.
Svanur Eiríksson
var arkitekt kirkjunnar. Fyrsta skóflustunga var tekin 31. maí 1984 (Pétur
Sigurgeirsson, biskup). Híbýli sáu um
byggingu fyrsta áfangans og Eiríkur
Stefánsson var eftirlitsmaður sóknarinnar. Í apríl
1985 var samið við Híbýli um byggingu annars áfangans og
hinn 18. ágúst 1985 var fyrst messað í kirkjunni.
Kirkjan varð rúmlega fokheld 7. júní 1986 og þá var
haldinn kirkjudagur með fjölbreyttri dagskrá. Í
upphafi árs 1987 var lokið við innréttingu efri hæðar
suðurálmu. Pétur Sigurgeirsson, biskup, vígði fyrsta
hluta kirkjunnar 15. febrúar 1987. Kirkjuvörður,
Sigurveig Bergsteinsdóttir, var ráðinn í apríl 1987.
Áskell Jónsson,
sem hafði verið organisti Lögmannshlíðarkirkju frá 1942, lét af
störfum 1987, þegar hann varð 76 ára. Hann og kona hans stofnuðu
orgelsjóð kirkjunnar 1986 og unnu ötullega að því að fá einstaklinga
og fyrirtæki til að styrkja hann. Jóhann Baldvinsson tók við starfi
organista og hófst handa við að huga að orgeli fyrir kirkjuna.
Rafeindaorgel var keypt sumarið 1988. Í því eru upptökur tveggja
orgela í Evrópu á tölvukubbum.
Árið 1988 var
farið að huga að kirkjuklukkum og snemma næsta ár voru tilkynnt tilboð
í þær. Klukkurnar voru steyptar í Hollandi og komu í hús 1990. Þær
eru þrjár talsins og vega samtals 1400 kg. Seljandi annaðist
uppsetningu þeirra og þær hljómuðu fyrst 2. september 1990.
Árið 1989 var sett
stálklæðning á þak kirkjunnar . Halldór Jóhannsson, landslagsarkitekt,
annaðist skipulagningu lóðar og samtímis var óskað tilboða í
flóðlýsingu turns og kross. Lýsingingin var kominn upp síðla sama ár.
Málningarvinnu utanhúss lauk sumarið 1990.
Sr Pálmi
Matthíasson var óvænt kallaður til starfa í Bústaðasókn í Reykjavík í
apríl 1989 og Pétur Þórarinsson á Möðruvöllum var valinn úr hópi
þriggja umsækjenda. Ekki auðnaðist honum langt starf í sókninni, því
hann varð að fá frí vegna veikinda hálfu ári síðar. Hann náði ekki
nægum bata til að koma aftur til starfa. Sr.
Lárus Halldórsson leysti hann af í nóvember 1990 og starfaði fram í
lok maí 1991. Í apríl 1991 var sr Gunnlaugur Garðarsson í Garðasókn
valinn úr hópi þriggja umsækjenda og hann kom til starfa í júníbyrjun.
Árið 1990 var
lokið við frágang neðri hæðar vesturálmu. Bílastæði vestan kirkjunnar
voru malbikuð og einangrun kirkjuskipsins var lokið fyrir jól.
Kirkjan ver alls 2100 m2 (neðri hæðin 1000 m2).
Árið 1992 var framreiknaður byggingarkostnaður kr. 250 miljónir.
Kirkjan var vígð 6. desember 1992.
Símar:
Glerárkirkja 464-8800, fax 464-8809
Sr Gunnlaugur Garðarsson 464-8808, 864-8455
Sr Arnaldur Bárðarson 464-8802, 864-8456
Hjörtur Steinbergsson, organisti, 464-8804 |