|
Grundarkirkja er í
Laugalandsprestakalli í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Grund er bær og kirkjustaður frá fornu fari í
Hrafnagilshreppi. Þar
voru katólskar kirkjur helgaðar heilögum Lárentíusi.
Grund tilheyrði Grundarþingum fyrrum.
Magnús Sigurðsson, bóndi, byggði núverandi kirkju árið
1904-05 fyrir eigið fé.
Hún
er meðal veglegri kirkna landsins og hin langstærsta, sem
einstaklingur hefur byggt. Yfirsmiður
var Ásmundur Bjarnason frá Eskifirði.
Glerið í gluggana skar Magnús sjálfur.
Málarinn, Muller, var norskur.
Nokkrir gripa kirkjunnar eru varðveittir í Þjóðminjasafninu,
s.s. kaleikur frá 15. öld og stóll frá tímum Þórunnar, dóttur
Jóns Arasonar biskups. Kirkjan
er bændakirkja. |