|
Hálskirkja er á prestssetrinu Hálsi í
Fnjóskadal. Hún er í Ljósavatnsprestakalli og
Þingeyjarprófastsdæmi. Þar voru katólskar kirkjur helgaðar
Pétri postula og útkirkjur eru á Draflastöðum og á
Illugastöðum. Kirkjan, sem nú stendur, var byggð1859-63. Hún var
ófullgerð árið 1860, þegar hún var vígð. Tryggvi Gunnarsson
var yfirsmiður. Kirkjan er úr timbri með plægðri súð og
sönglofti. Hún var bændakirkja þar til söfnuðurinn tók við
henni 1910.
Árin 1923 og 1959-60 var gert við kirkjuna og á áttunda
áratugi 20. aldar var settur ljóskross á stafn hennar.
Prédikunarstóllinn er frá 1726 og altaristaflan frá 1860. Í
klukknaporti eru tvær klukkur. Lárentíus Kálfsson
(1267-1330), síðar biskup á Hólum, var prestur á Hálsi um
tíma. Hann stofnaði prestaspítala að Kvíabekk í Ólafsfirði.
Í landi Háls, niðri við Fnjóská, er gamall þingstaður,
Leiðarnes, þar sem sést fyrir búðarústum. |