|
Hofskirkja er í Hólaprestakalli í
Skagafjarðarprófastsdæmi. Hof er bær og kirkjustaður á
Höfðaströnd, skammt austan Hofsóss. Þar voru katólskar kirkjur
helgaðar Pétri postula og tilheyrðu Hofsþingum. Þau voru lögð
niður 1891 og Hofssókn lögð til Fells.
Nú er þar útkirkja frá
Hofsósi. Timburkirkjan, sem þar stendur nú, var byggð á árunum
1868-70. Henni hefur verið breytt nokkuð að innan. Söngloftið,
sem var yfir framkirkju, var tekið niður og nú er sungið á palli
vinstra megin við dyrnar.
Altaristaflan er frá 1655 og
prédikunarstóllinn frá 1650. Innrammaður silfurskjöldur er til
minningar um Jakob Havsteen, kaupmann á Hofsósi og konu hans. |