|
Hofsóskirkja er í Hofsósprestakalli í
Skagafjarðarprófastsdæmi. Steinkirkjan á Hofsósi var vígð 28.
ágúst 1960. Áður áttu Hofsósbúar kirkjusókn til Hofs á
Höfðaströnd. Árið 1891 voru Fells- og Hofsprestaköll sameinuð
og Fellsprestur fluttist til Höfða, þar sem var útkirkja frá
Felli.
Vorið 1906 var prestssetrið flutt til Hofsóss. Kirkjan tekur
164 í sæti, kórinn er upphækkaður og milligerð úr viði milli
hans og aðalkirkju. Sveinn Kjarval, arkitekt, teiknaði
ljósabúnaðinn. Stór ljóskross er yfir altari í stað töflu.
Skírnarsárinn er úr stuðlabergi, sem tekið var úr
Staðarbjargavík á Hofsósi. |