|
Hofsstaðakirkja er í Miklabæjarprestakalli í
Skagafjarðarprófastsdæmi. Hofsstaðir eru bær og kirkjustaður í
Hofsstaðaplássi í Viðvíkursveit. Þar var höfuðkirkja í
Hofsstaðaþingum til 1861 og síðar útkirkja frá Viðvík, þar
til Miklibær tók við 1970.
Kirkjan, sem nú stendur, var vígð um
aldamótin 1900. Hún er byggð úr timbri á hlöðnum grunni. Jón
Björnsson frá Ljótsstöðum var yfirsmiður og með honum Jónas
Jónsson frá Syðri-Brekkum.
Altaristafklan er frá 1727 (kvöldmáltíðin).
Kirkjan var upphaflega vönduð að allri gerð en fyrir nokkrum árum
var hún að falli komin. Katólskar kirkjur á Hofsstöðum voru
helgaðar Maríu guðsmóður. Þar var Maríulíkneski, sem mikil
helgi hvíldi á, og fólk kom langa vegu til að heita á myndina.
Þetta líkneski og krossinn í Kaldaðarnesi munu hafa verið
helgustu kirkjugripir í katólskum sið. |