|
Höskuldsstaðakirkja er í
Skagastrandarprestakalli í Húnavatnsprófastsdæmi. Höskuldsstaðir
eru bær og kirkjustaður á Skagaströnd. Þar var prestssetur til
1964, þegar það var flutt til Skagastrandar og katólskar kirkjur
voru helgaðar Maríu guðsmóður og Pétri postula.
Kirkjan, sem nú
stendur á Höskuldsstöðum, var vígð 31. marz 1963. Hún er úr
steinsteypu og tekur 100 manns í sæti. Litað gler er í gluggum.
Yfir sönglofti er herbergi. Trékross er efst á turninum.
Skrúðhúsið er sunnan kórs. Kaleikur og patina eru frá 1804 og
altaristaflan er eftir Þórarin B. Þorláksson. Klukkurnar tvær eru
frá árunum 1733 og 1737. |