|
Hvammskirkja er í Sauðárkróksprestakalli í
Skagafjarðarprófastsdæmi. Hvammur er eyðibýli, kirkjustaður og
fyrrum prestssetur í utanverðum Laxárdal, sem hafði útkirkju á
Ketu. Prestakallið var lagt niður með lögum 1970 og sóknirnar
lagðar til Sauðárkróks. Síðstir presturinn á Hvammi, séra
Finnbogi Kristjánsson, flutti þaðan 1975. Hann var áður síðasti
prestur á Stað í Aðalvík. Katólskar kirkjur í Hvammi voru
helgaðar Ólafi helga Noregskonungi.
Timburkirkjan á hlaðna grunninum, sem nú stendur í Hvammi,
var byggð 1892.
Hún tekur um 80 manns í sæti. Klukkur kirkjunnar voru
fyrst í turni, sem var fjarlægður, en síðar undir loftinu,
þar sem turninn var.
Hvammur var talinn mjög fátækt brauð og margir prestanna þar áttu
erfitt uppdráttar. Sumir urðu jafnvel að flytjast brott vegna fátæktar
eins og séra Magnús J.
Skaftason, sem fluttist til Vesturheims og átti þar merkan
feril sem prestur landa sinna í nýjum heimi. |