|
Kaupangskirkja er í
Laugalandsprestakalli í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Kaupangur er bær og kirkjustaður í Kaupangssveit, suðaustan
Akureyrar. Ekki er ljóst,
hve lengi þar hefur staðið kirkja, en hennar er þó getið í Auðunnarmáldaga
árið 1318. Þar var fyrrum útkirkja frá Hrafnagili og katólskar
kirkjur staðarins voru helgaðar Maríu guðsmóður og Ólafi helga
Noregskonungi.
Steinkirkjan,
sem nú stendur, var vígð 1922 og tekur 90 manns í sæti.
Gengið er inn í kirkjuna á norðvesturhorni.
Hún á altaristöflu eftir Þórarin B. Þorláksson, listmálara og
gamla brík frá 17. öld. Byggingarmeistari
hennar var Sveinbjörn Jónsson, sem síðar
var kenndur við Ofnasmiðjuna í Reykjavík. Hún var
hlaðin úr r-steini og er sérstök vegna stöðu turnsins.
Hún var endurnýjuð að innan árið 1988. |