|
Knappstaðakirkja er í Hofsóssprestakalli í
Skagafjarðarprófastsdæmi. Knappstaðir eru eyðibýli,
kirkjustaður og fyrrum prestssetur í Stíflu. Þar voru katólskar
kirkjur helgaðar Pétri postula.
Kirkjan, sem nú stendur, er álitin elzta timburkirkja landsins, byggð
fyrst 1834 og aftur 1838, en þá um sumarið hrundi hún næstum til
grunna í jarðskjálfta. Hún er lítil en stæðileg og
meðal fegurstu kirkna landsins.
Hún var afhelguð
en klukknaport
var sett á stafn, gluggar stækkaðir, bekkir
endurnýjaðir og hvelfing sett í loft kirkjunnar árið
1896
Prédikunarstóllinn er frá 1704 og altaristaflan allmerkileg. Yfir
henni er mynd af Kristi konungi, máluð á tré og augljóslega mjög
gömul. Brauðið var mjög fátækt en skrimti þó til 1881. |