|
Kvíabekkjarkirkja er í Ólafsfjarðarprestakalli
í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Kvíabekkur er bær og kirkjustaður í
Ólafsfirði. Prestssetrið var flutt þaðan til Ólafsfjarðar.
Katólskar kirkjur þar voru helgaðar Ólafi helga Noregskonungi.
Kirkjan, sem nú stendur, var byggð 1892. Árið 1889 var reist þar
vegleg kirkja en hún fauk í illviðri 1892.
Söfnuðurinn var
fátækur en engu að síður var önnur kirkja reist strax úr viðun
hinnar foknu. Hún er lágreistari og mjórri en hin fyrri.
Ólafsfjarðarkirkja var byggð úr steinsteypu árið 1915 og þá
lagðist þjónusta af á Kvíabekk. Ekki voru allir sáttir við þá
þróun og kirkjan var endurbætt verulega og síðan var hún
endurvígð 29. júní 1958. Þórður Jónsson, bóndi frá
Þóroddsstöðum, gaf kirkjunni skírnarsá, sem hann smíðaði
sjálfur.
Kirkjan var stækkuð til vesturs árið
1969, þar sem skrúðhúsið og stigi upp á söngloft er
nú. Samtímis var smíðaður nýr turn. Kirkjan var plastklædd
1975 og máluð að innan 1977. Það verk annaðist Kristinn G.
Jóhannsson, skólastjóri og listamaður. Hann málaði líka nýja
altaristöflu með sérstæðu sniði. Hún sýnir störfin á
Ólafsfirði til sjávar og sveita, skipið og túnið annars
vegar og hins vegar kirkjurnar í byggðinni og fyrir miðju er
Jesús, sem tengir allt saman.
Lárentíus Kálfsson, Hólabiskup, stofnaði spítala fyrir
presta á Kvíabekk í kringum 1330. Hann var nokkurs konar elli- og
örorkuhæli fyrir presta, eitt hið fyrsta sinnar tegundar á landinu. |