|
Lögmannshlíðarkirkja er í Glerárprestakalli í
Eyjafjarðarprófastsdæmi. Lögmannshlíð er fornt höfðingjasetur
og kirkjustaður, skammt norðan Akureyrar. Þar voru katólskar
kirkjur helgaðar Ólafi helga Noregskonungi og þar var öldum saman
úrkirkja frá Glæsibæ og frá 1884 frá Akureyri.
Glerárhverfi var
í sókninni þar til nýtt prestakall var stofnað þar. Kirkjan í
Lögmannshlíð var vígð fyrsta sunnudag í aðventu 1861. Hún var
byggð á fótstykkjum með bindingsverki, klædd að utan með
slagborðum og alþiljuð að innan. Jóhann Einarsson frá
Syðri-Haga var yfirsmiður.
Þorsteinn Daníelsson á Skipalóni var
eftirlitsmaður. Árið 1886 var forkirkjan byggð og kirkjan
hvítmáluð en hún hafði verið tjörguð. Matthías Jochumssonar, sem var þá
sóknarprestur kirkjunnarfékk glugga yfir
predikunarstólinn. Forturn, setloft og kvistur voru
byggð 1896. Ljóskross er á turninum.
Altaristaflan
eða bríkin með vængjum er frá 1648 og sýnir kvöldmáltíðina.
Á prédikunarstólnum eru myndir af guðspjallamönnunum frá árinu
1781 og virðist vera óbreyttur frá upphafi. Kristmynd eftir Eggert
Guðmundsson, listmálara, er á kórvegg. |