|
Lundarbrekkukirkja er í Ljósavatnsprestakalli í
Þingeyjarprófastsdæmi. Lundarbrekka var stórbýli og kirkjustaður
í austanverðum Bárðardal. Þar hefur verið kirkja frá
öndverðri 11. öld og í katólskum sið voru kirkjurnar helgaðar
Guði, heilögum Nikulási og öllum heilögum mönnum.
Bændakirkja
var þar til ársins 1878, þegar nýlega byggð kirkja brann til
kaldra kola. Þá tók söfnuðurinn að sér að reisa kirkju og
hefur séð um hana síðan. Það var afráðið að byggja
steinkirkju og efnið sótt í gil vestan Skjálfandafljóts. Það
var höggvið til og flutt á ísi yfir ána veturinn 1879.
Þakið var sett á kirkjuna 1880 og 4.
desember 1881 var hún vígð. Á turni kirkjunar er ljóskross,
loftið í henni er lítið og hvelfingin er alsett gylltum
stjörnum, sem voru gerðar úr birki. Altaristaflan er
eftir Ásgrím Jónsson, listmálara, máluð 1916. Hún sýnir
Krist flytja fjallræðuna í íslenzku landslagi. Kristján og
Jóhann Vigfússynir í Litla-Árskógi skáru skírnarsáinn út en
að öðru leyti smíðaði hann Valdimar Jóhannesson á Akureyri.
Prestssetrið var aflagt 1902 og kirkjunni
þjónað frá Skútustöðum til 1913. Síðan þá hefur hún verið
í Ljósavatnsprestakalli eða Staðarfellsprestakall með kirkjunum
á Þóroddsstöðum og á Ljósavatni. |