|
Melstaðarkirkja er í Melstaðarprestakalli í
Húnavatnsprófastsdæmi. Melstaður er bær og prestssetur í
Miðfirði og um aldir talinn meðal beztu og eftirsóknarverðustu
brauða landsins.
Kirkja var byggð þar skömmu eftir kristnitökuna
og helguð heilögum Stefáni í katólskum sið. Útkirkjur eru á
Hvammstanga, Staðarbakka og Efra-Núpi. Steinkirkjan, sem nú stendur,
var vígð 8. júní 1947 og tekur 150 manns í sæti. Altaristaflan
sýnir skírn Krists, eftir Magnús Jónsson, prófessor, og
Ríkharður Jónsson skar út prédikunarstólinn.
Í skrúðhúsinu
eru tvær grafskriftir, önnur um séra Arngrím Jónsson lærða og
séra Halldór Ámundason (1773-1843) á Melstað. |