|
Miðgarðakirkja er í Akureyrarprestakalli í
Eyjafjarðarprófastsdæmi. Miðgarðar eru bær og kirkjustaður í
Grímsey. Þar voru katólskar kirkjur helgaðar Ólafi helga
Noregskonungi. Kirkjan, sem nú stendur, var byggð 1867.
Turn og kór voru reistir árið 1932.
Árni
Hallgrímsson frá Garðsá í Garðsárdal var yfirsmiður.
Árið
1932 var kirkjan færð um lengd sína frá Miðgarðabænum vegna
eldhættu. Þá var byggður kór og forkirkja með turni við hana.
Þá var yfirsmiður Helgi Ólafsson.
Gagnger endurbót fór fram 1956 og hún
var endurvígð. Hana annaðist Einar Einarsson, smiður. Hann
var djákni á árunum 1961-1967. Einar gerði tréskurðarmyndina
á útihurðinni en hún sýnir Jesú í bátnum, þegar hann kyrrði
vind og vatn. Einar skar líka út prédikunarstólinn auk skírnarsás. Altaristaflan sýnir
kvöldmáltíðina og yfir henni er ævagamall marmarakross með
Kristslíkneski úr katólskum sið. |