|
Möðruvallakirkja er í Laugalandsprestakalli í
Eyjafjarðarprófastsdæmi. Möðruvellir eru bær og kirkjustaður í
Eyjafirði. Líklegt er, að Guðmundur Eyjólfsson ríki hafi látið
byggja fyrstu kirkjuna þar og katólskar kirkjur staðarins voru
helgaðar heilögum Marteini. Kirkjan, sem nú stendur, var að mestu
byggð 1847 og henni lokið árið eftir, þegar hún var vígð.
Flóvent Sigfússon á Kálfskinni og Friðrik Möller á
Möðruvöllum voru aðalsmiðir. Líklega var Ólafur Briem á Grund
yfirsmiður.
Hún er turnlaus timburkirkja í hefðbundnum stíl og
með krossi á framstafni. Milligerð er milli kórs og framkirkju og
söngloft uppi. Tréverk er fíngert og íburði þó still í hóf.
Haukur Stefánsson, listmálari, málaði og skreytti kirkjuna í
tilefni aldarafmælis hennar.
Kirkjan fauk af grunni skömmu fyrir
jól 1972. Svipað gerðist 1857 og 1765. Altarisbrík úr
alabastri, sem Margrét Vigfúsdóttir gaf kirkjunni (1484?),
er merkasti gripur hennar. Klukknaportið er frá 1781. |