|
Ólafsfjarðarkirkja er í
Ólafsfjarðarprestakalli í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Prestur hefur
setið í Ólafsfirði síðan skömmu eftir aldamótin 1900. Fyrsti
presturinn, séra Helgi Árnason (1857-1938) var frumkvöðull að
kirkju í bænum. Rögnvaldur Ólafsson teiknaði hana og hún var
byggð 1915. Stórhugurinn og framsýnin við bygginguna var svo mikil,
að hún rúmaði næstum alla íbúana, þegar hún var byggð. Henni
hefur verið haldið vel við og endurbætt á ýmsan hátt. Ytra
útlit hefur haldið sér að mestu en turninn er svolítið breyttur.
Kirkjan lengd 1997 og viðbygging gerð við norðurhlið,
sem tengir kirkjuna safnaðarheimilinu.
Minnisvarðinn um drukknaða sjómenn við
kirkjuna var afhjúpaður 1940, hinn fyrsti sinnar tegundar á
landinu. Hann er úr blágrýti, 3½ tonn að þyngd, og framan á
honum er lágmynd eftir Ríkharð Jónsson. Kristinn G. Jóhannsson listmálari og skólastjóri, skreytti
kirkjuna að innan. Sigrún Jónsdóttir teiknaði skírnarsáinn, sem er úr
grásteini. |