|
Gamla Svalbarðsstrandarkirkjan er í Akureyrarprestakalli
í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Hún stendur á sama grunni og fyrsta
kirkja Akureyrar fyrir neðan Byggðasafnið við hliðina á
Nonnahúsi.
Samkvæmt Svalbarðsstrandarbók frá 1964 stóð þar
kirkja þar frá miðri 12. öld. Árið 1846 var 94 ára gömul kirkja rifin og
timburkirkja byggð í hennar stað.
Nýja kirkjan var fyrsta timburhúsið á þessum slóðum og er enn þá í notkun.
Hún var flutt til Akureyrar og komið fyrir á stæði fyrstu kirkju bæjarins milli
Nonnasafns og Byggðasafnsins við Aðalstræti.
Þar þjónar hún sem kirkjusafn og er hluti Byggðasafnsins. |