|
Sauðaneskirkja er í Þórshafnarprestakalli í
Þingeyjarprófastsdæmi. Sauðanes er bær, kirkjustaður og var
prestssetur á Langanesi, sjö km norðan Þórshafnar. Sauðanes var
lengi talið eitt þriggja beztu brauða landsins. Þar voru
katólskar kirkjur helgaðar Guði og Ólafi helga Noregskonungi.
Útkirkja var á Svalbarði.
Timburkirkja á hlöðnum steingrunni,
sem nú stendur, var byggð 1889. Í henni er forn vængjatafla með
ártalinu 1742. Aftan á hliðarvængjum hennar stendur: „Offeret
kirkan af Hans Mülle Luia." Prédikunarstóllinn stendur á
útskornum og gildum tréfæti. Á hliðum hans eru fjórar stórar
postulamyndir. Séra Árni Skaftason (1693-1770), sem sat Sauðanes
frá 1717 til dauðadags, gaf kirkjunni stólinn.
Ríkharður Jónsson gerði skírnarsáinn í
tilefni 70 ára afmælis séra Þórðar Oddgeirssonar
(1883-1955), sem þjónaði Sauðanesi 1918-1955. Munnmæli
herma, að kirkja hafi eitt sinn verið byggð úr gjafaviði frá
bóndanum á Eiði á Langanesi. Hann hafði hrakið á hafís
norður til Jan Mayen. Þar smíðaði hann fleka úr rekavið og
sigldi aftur heim. Hann gaf kirkjunni flekann í
guðsþakkarskyni og úr honum var kirkjan smíðuð. Þá stóð
kirkjan nokkru neðar en núverandi kirkja.
Önnur saga segir frá
því, að Vopnfirðingar hafi eitt sinn drepið prest í kirkjunni
fyrir altari á sjálfan páskadaginn. |