|
Sauðárkrókskirkja er í
Sauðárkróksprestakalli í Skagafjarðarprófastsdæmi.
Timburkirkjan á Sauðárkróki var byggð 1892 og vígð 18.
desember. Þorsteinn Sigurðsson var yfirsmiður en Ludvig Popp mun
hafa ráðið mestu um gerð kirkjunnar. Kirkjan stóð, óbreytt að
kalla, þar til turninn var rifinn 1957. Hann var endurbyggður og
aukið við kirkjuhúsið um leið. Stefán Jónsson, arkitekt frá
Sauðárkróki, teiknaði breytingarnar. Árið 1971 var kirkjan
endurbætt mikið, einkum innanstokks.
Haukur Stefánsson og Jónas Þór
Pálsson, málarameistarar, máluðu kirkjuna eftir fyrirsögn
Stefáns. Litavalið, kirkjubekkirnir og gömlu olíulamparnir,
sem nú eru raftengdir, vekja athygli gesta kirkjunnar.
Prestaskrúði kirkjunnar er mjög vandaður og margir aðrir
merkir og fagrir gripir eru í kirkjunni. Anker Lund málaðir altaristöfluna 1895. Hún sýnir
Krist og lærisveinana tvo á leið til Emmaus. Helgi
Angantýsson skar út skírnarsáinn 1955. Leifur Kaldal gerði
koparskálina í honum árið 1979. Hjónin Guðrún Sigurðardóttir
og Jens Urup Jensen gerðu steindu gluggana í kórnum. Gréta
Björnsson málaði myndir og tákn guðspjallamannanna á
prédikunarstólinn árið 1959.
Formæður Sauðárkrókskirkju voru
á Fagranesi á Reykjaströnd og Sjávarborg í Borgarsveit. Þaðan
eru hinir fornu verndardýrlingar þeirra, Andrés postuli og Mattheus
guðspjallamaður, sem líkneskjurnar eru af í anddyri kirkjunnar.
Sveinn Ólafsson gerði þær. Gamla sjúkrahúsið við hlið
kirkjunnar var keypt 1965 og því breytt í safnaðarheimili, hið
fyrsta slíkt hérlendis. Pípuorgelið kom í kirkjuna 1960. Gamla
sóknarkirkjan á Sjávarborg frá 1853 var endurnýjuð og varðveitt
sem safngripur á vegum Þjóðminjasafnsins árið 1983. |