|
Saurbæjarkirkja
Laugalandsprestakalli í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Saurbær er bær og kirkjustaður í Saurbæjarhreppi, innstu
sveit Eyjafjarðar. Heimildir
eru um kirkjur að Saurbæ á öldum áður og á katólskum tímum
voru þær helgaðar heilagri Cecilíu og heilögum Nikulási.
Prestar eru nafngreindir á 14. öld.
Sagnir segja frá klaustri í Saurbæ í nokkra áratugi um og
eftir 1200, en þær eru byggðar á óljósum og takmörkuðum
heimildum. Katólskar
kirkjur í Saurbæ voru helgaðar heilögum Nikulási og Ceciliu mey.
Árið 1907 var Saurbæjarprestakall sameinað Grundarþingum
en prestur sat þar samt til 1931. Saurbæjarkirkja er ein örfárra torfkirkna landsins
og stærst hinna upprunalegu.
Séra Einar Thorlacius (1790-1870) lét reisa hana 1858.
Hún rúmar 60 manns í sæti og yfirsmiður var Ólafur Briem.
Hún er friðlýst og í umsjá Þjóðminjasafnsins.
Steinsteyptur kjallari undir norðausturhorni kirkjunnar
var gerður 1959-1960. Árið
2003 var kirkjan endurbyggð.
Smámunasafn
Sverris Hermannssonar húsasmíðameistara stendur rétt neðan
við Saurbæ og þar er góð aðstaða fyrir ferðafólk,
kaffiveitingar og salerni, auk þess sem safnið er
einstaklega skemmtilegt og smekklega uppsett.
Nánari upplýsingar má fá hjá safnverði,
Guðrúnu Steingrímsdóttur. Sími: 865-1621 |