|
Skinnastaðakirkja er í Skinnastaðarprestakalli í
Þingeyjarprófastsdæmi. Skinnastaður er bær, kirkjustaður og
prestssetur í Öxarfirði. Katólskar kirkjur þar voru helgaðar
Pétri og Páli postulum. Skinnastaðaprestar þjónuðu mörgum
hálfkirkjum og bænhúsum á miðöldum, s.s. í Hafrafellstungu,
Klifshaga og jafnvel í Möðrudal á Fjöllum var útkirkja þaðan
á árunum 1859-1880 og aftur 1906-1966, Garði í Kelduhverfi frá
1862 og Presthólasókn (frá 1927 Snartarstaðasókn).
Prestakallið
er eitt hið víðlendasta á landinu, einkum, þegar Hólsfjöll
lágu til brauðsins. Timburkirkjan, sem nú stendur, var byggð 1854.
Hún er með turni og tekur 70 manns í sæti. Skarsúðin í loftinu
er blámáluð og skreyttur bogi yfir kórdyrum.
Undir turninum er
loftpallur. Arngrímur Gíslason, listmálari í Öxarfirði, skreytti kirkjuna í
upphafi með rósafléttum á veggjum og öðru málverki.
Um aldamótin 1900 var þakturninn tekinn af
kirkjunni og söngloft smíðað. Síðar var
kirkjan múrhúðuð að utan. Hún var lagfærð í tilefni
aldarafmælisins og þá var nýr þakturn settur á hana. Þá endurnýjaði hinn listfengi bóndi, Helgi
Gunnlaugsson á Hafurstöðum, hinar gömlu veggskreytingar.
Meðal
góðra gripa kirkjunnar eru tveir voldugir koparstjakar, sem séra
Jón Einarsson gaf henni 1694, silfurkaleikur og patina frá því um
1790, tvær gamlar klukkur, önnur frá 1824 og hin er eldri, forn
prédikunarstóll í endurreisnarstíl og skírnarsár úr eik, sem
gefinn var til minningar um Hjörleif Guttormsson.
Skammt norðan
Skinnastaðar er Brandslækur, þar sem sagt er að Þangbrandur hafi
skirt Öxfirðinga. Jökulsá
á Fjöllum hefur löngum leikið presta staðarins grátt, drepið
fyrir þeim fé og fólk auk þess að eyða landi. |