|
Snartarstaðakirkja er í Skinnastaðaprestakalli
í Þingeyjarprófastsdæmi. Snartarstaðir eru bær og kirkjustaður
skammt frá Kópaskeri í Presthólahreppi. Kirkjan á Presthólum var
lögð niður 1928 og ný 80-90 sæta sóknarkirkja, steinsteypt með
turni, byggð á Snartarstöðum og vígð 5. marz 1929. Ingvar
Jónasson var yfirsmiður. Ljóskross var settur á hana á 50 ára
vígsluafmælinu.
Henni fylgdu ekki margir gripir úr Presthólakirkju
en einn þeirra er sérkennilegur koparstjaki með ártalinu 1655 og
silfurkaleikur og patina frá 18. öld. Sveinungi Sveinungason í
Lóni málaði aflagða altaristöflu, sem er í kirkjunni.
Nokkrir
munir skemmdust í jarðskjálftanum 13. janúar 1976 en kirkjuhúsið
sjálft slapp. Öll Núpasveit á kirkjusókn til Snartarstaða auk
Melrakkasléttu, allt að Blikalóni, en þar tekur Raufarhafnarsókn
við. |