|
Staðarbakkakirkja Melstaðarprestakalli í
Húnavatnsprófastsdæmi. Staðarbakki er bær og kirkjustaður í
Miðfirði, næsti bær við Melstað, sem er einnig kirkjustaður.
Staðarbakki var áður prestssetur en nú er þar útkirkja frá
Melstað síðan 1907.
Katólskar kirkjur á staðnum voru helgaðar
Jóhannesi skírara. Timburkirkjan með turni og lofti og sætum fyrir
120 manns var byggð þar 1890 og vígð 16. nóvember sama ár.
Halldór Bjarnason frá Gröf í Borgarhreppi var kirkjusmiður.
Altaristafla með Kristmynd eftir Eyjólf Eyfells prýðir kirkjuna.
Talið er að Guðbrandur Þorláksson, biskup á Hólum, hafi fæðzt
á Staðarbakka. |