|
Stóra-Árskógskirkja er í Hríseyjarprestakalli
í Eyjafjarđarprófastsdćmi. Stóri-Árskógur er bćr og
kirkjustađur á Árskógsströnd viđ vestanverđan Eyjafjörđ. Ţar
var Jónskirkja í katólskum siđ og prestssetur til 1884, ţegar
sóknin var sameinuđ Völlum.
Stór og vegleg timburkirkja var vígđ
1898, en hún skemmdist í fárviđri og skekktist á grunninum
tveimur árum síđar. Ný 150 sćta, steinsteypt kirkja međ turni,
forkirkju og kór var byggđ á árunum 1926-1927 og vígslan fór
fram 6. júní.
Guđjón Samúelsson, húsameistari ríkisins og
Halldór Halldórsson, arkitekt frá Garđsvík, teiknuđu kirkjuna.
Vigfús Kristjánsson í Stóra-Árskógi var yfirsmiđur.
Altaristaflan er tákn upprisunnar eftir Arngrím Gíslason, málara.
Guđmundur Guđmundsson, bíldhöggvari, skar fagran umbúnađ hennar.
Kirkjan á tvo skírnarsái, annan skáru Hannes og Kristján
Vigfússynir í Stóra-Árskógi en hinn gerđi Guđmundur Frímann
skáldi og í honum er forn skírnarskál. Á turni kirkjunnar er
ljóskross. |