|
Undirfellskirkja er í Þingeyrarprestakalli í
Húnavatnsprófastsdæmi. Katólskar kirkjur á staðnum voru
helgaðar Nikulási biskupi í Myra. Útkirkja var að Másstöðum,
þar til hún brotnaði í snjóflóði 1811, og í Grímstungu 1849-1881.
Víða voru hálfkirkjur og bænhús í sókninni. Kirkjan,
sem nú stendur, er byggð úr steinsteypu 1915. Rögnvaldur Ólafsson,
húsameistari, teiknaði hana.
Turninn rís upp úr nyrðra framhorni
hennar. Ásgrímur Jónsson málaði altaristöfluna (Jesús að
blessa börnin). Nokkrir aðrir góðir gripir eru í kirkjunni.
Timburkirkjan, sem þarna stóð frá 1893, brann annan í jólum
1913. Sonur síðasta prestsins, Hjörleifs Einarssonar, sem
þjónaði að Undirfelli í 30 ár til 1906, var Einar H. Kvaran
(1859-1938), rithöfundur. Fyrsti listmálarinn, sem kvað að á
Íslandi, Þórarinn B. Þorláksson (1867-1924), fæddist að
Undirfelli. |