|
Urðarkirkja er í Dalvíkurprestakalli í
Eyjafjarðarprófastsdæmi. Urðir eru bær og kirkjustaðru í
innanverðum Svarfaðardal. Kirkjan að Urðum fauk í miklu ofviðri
20. september árið 1900 og brotnaði í spón. Þetta veður er
almennt kallað „kirkjuveðrið", því að allar fjórar
kirkjurnar í dalnum fuku, ýmist á grunni eða alveg. Strax var
hafizt handa við byggingu nýrrar timburkirkju, turnlausa, með
lítilli forkirkju á hlöðnum grunni.
Söngloft er í henni og
hún tekur 40-50 manns í sæti. Hún stendur í allstórum garði á
fornu kirkjustæði. Nýr grafreitur var tekinn upp 1944 á dálitlum
hjalla ofan við staðinn.
Munirnir, sem björguðust úr braki
gömlu kirkjunnar prýða þessa kirkju. Altaristaflan eftur
Arngrím Gíslason, málara, skemmdist talsvert en gert var við
hana.
Prédikunarstóllinn er frá 1766 og er
allsérkennilegur. Jón Bergsson frá Hæringsstöðum skar
haglega út númeratöfluna. Önnur tveggja klukkna er talin
vera frá 1534.
Katólskar kirkjur á
staðnum voru helgaðar Maríu guðsmóður og Andrési postula. Þar
var útkirkja frá Tjörn þar til prestakallið var lagt niður 1917
og sóknirnar lagðar til Vallaprestakalls og síðan til Dalvíkur. |