|
Kirkjan er í
Breiðabólstaðarprestakalli í Húnavatnsprófastsdæmi.
Vesturhópshólar eru bær, kirkjuastaður og fyrrum prestssetur í
Vesturhópi. Katólskar kirkjur þar voru helgaðar Jóhannesi
skírara. Tjörn á Vatnsnesi þjónaði kirkjunni eftir að
prestssetrið var lagt niður og svo var lengi frameftir, þótt lög
frá 1970 legðu báðar kirkjur undir Breiðabólstað.
Hálfkirkjurnar á Ægissíðu og í Ásbjarnarnesi og bænhús á
Valdalæk lágu undir Vesturhópshóla í fyrndinni. Turnlausa
timburkirkjan, sem nú stendur, var byggð 1877-78. Hún ber krossmark
yfir framstafni og klukknaport yfir dyrum. Hún var bændakirkja til
1959, lengur en nokkur önnur kirkja í Húnavatnsprófastsdæmi.
Meðal merkra gripa kirkjunnar er
prédikunarstóllinn, líklega frá 17. öld. Guðmundur
Guðmundsson í Bjarnastaðahlíð mun hafa smíðað hann.
Altaristaflan er allgömul, máluð trétafla með mynd af
Kristi á krossinum. Báðir þessir gripir voru líklega í
Hoskuldsstaðakirkju fyrrum. Séra Ólafur Hjaltason (um
1500-1569) var sóknarprestur í Vesturhópshólum.
Hann varð fyrsti lúterski
biskupinn á Hólum og var í miklum metum hjá Jóni Arasyni, sem
bannfærði hann síðar, þegar hann snérist gegn kenningum
katólsku kirkjunnar. Hann lét prenta Passio eftir Corvinus, sem nú
er aðeins eitt eintak til af í Háskólabókasafninu í
Kaupmannahöfn og þó ekki heilt. Hún er elzta bók, sem prentuð
var á Íslandi og er enn þá til. |