|
Hafnarkirkja er í
Bjarnanesprestakalli í
Skaftafellsprófastsdæmi. Hún var byggð á árunum 1962-1966 og
vígð 28. júlí 1966.
Ragnar Emils var arkitekt hennar og
byggingameistari Guðmundur Jónsson. Hún er steinsteypt og
kirkjuskipið tekur 200 manns í sæti. Safnaðarheimilið er við
hliðina á kirkjunni. Jóhann Björnsson skar út skírnarsáinn og
yfir altari er ljóskross. María Katzgrau gerði steindu gluggana á
suður- og vesturhliðum kirkjunnar.
Orgelið var smíðað hjá P.
Bruhn og søn í Danmörku árið 1996. |