|
Hlíðarendakirkja er í
Breiðabólsstaðar-prestakalli í Rangárvallaprófastsdæmi. Hún var
byggð 1897 úr timbri og járnvarin og tekur 150 manns í sæti.
Árin 1973-74 var gert vel við hana.
Ólafur Túbals, listmálari, frá
Múlakoti gerði helgimyndirnar í henni. Silfurkaleikurinn er frá
miðöldum. Katólskar kirkjur voru helgaðar Þorláki biskupi helga.
Hlíðarendakirkja var aflögð 1802 og sóknin lögð til Teigs en
þar og í Eyvindarmúla voru kirkjurnar lagðar niður 1896 og
sóknirnar sameinaðar með kirkju að Hlíðarenda. |